
Línumaðurinn, Ásdís Halla Hjarðar verður frá æfingum með ÍBV næstu tvær til þrjár vikurnar vegna meiðsla í hné. Hún varð fyrir meiðslunum með íslenska landsliðinu í sumar er liðið lék á HM U20 ára í Kína. Ásdís Halla var ekki orðin nægilega góð í hnénu þegar ÍBV hóf æfingar að nýju eftir sumarfrí. Myndataka hefur nú leitt í ljós áverka á liðbandi í hnénu, eða tognun. Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, staðfesti stöðuna í samtali við Handkastið og segir að Ásdís Halla verði frá keppni í tvær til þrjár vikur til viðbótar. Olís-deild kvenna hefst eftir tæpar þrjár vikur og er Ásdís Halla því í kapphlaupi við tímann til þess að vera klár fyrir fyrsta leik ÍBV. ÍBV tekur á móti KA/Þór í 1.umferð Olís-deildarinnar, laugardaginn 5.september. Ásdís Halla var mikilvægur hluti af ÍBV-liðinu á síðustu leiktíð þegar Eyjakonur fóru alla leið í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Þar tapaði ÍBV 3-1 gegn Val. Litlar breytingar hafa orðið á leikmannahópi ÍBV í sumar. Britney Cots gekk í raðir Vals en Andrea Jacobsen kom heim úr atvinnumennsku og gekk til liðs við ÍBV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.