Agnes Lilja gæti misst af upphafi tímabilsins
Sævar Jónasson

Hin unga og efnilega, Agnes Lilja Styrmisdóttir varð fyrir meiðslum á yngri landsliðsæfingum í sumar og er enn að glíma við afleiðingar þess.

Agnes Lilja glímir við meiðsli í mjöðm og nára og er enn ekki orðin nægilega góð til að taka þátt í æfingum með liðinu, hvað þá leikjum. Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, staðfesti stöðuna í samtali við Handkastið. Enn eru nokkrar vikur í að Agnes Lilja geti hafið æfingar að nýju og því er ljóst að hún missir af upphafi tímabilsins.

Fjarvera hennar er áfall fyrir ÍBV sem hefur haldið leikmannahópnum að mestu óbreyttum frá síðustu leiktíð. Eyjakonur léku þá til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn en urðu að sætta sig við 3-1 tap gegn Val í úrslitaeinvíginu.

Helsta breytingin á hópnum í sumar er sú að Britney Cots gekk í raðir Vals, en Andrea Jacobsen kom heim úr atvinnumennsku og samdi við ÍBV.

Agnes Lilja verður því að bíða aðeins lengur eftir því að geta byrjað undirbúning fyrir nýtt tímabil með liðinu og gæti mögulega misst af upphafi tímabilsins með ÍBV en liðið tekur á móti KA/Þór í 1.umferð Olís-deildarinnar, laugardaginn 5.september.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top