

Handknattleikskonan Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir hefur fengið sinn skerf af meiðslum í gegnum tíðina. Það gladdi því marga mjög þegar hún birtist óvænt inn á vellinum síðastliðið vor í úrslitakeppninni með ÍBV. Setti hún 2 mikilvæg mörk m.a á móti Haukum í undanúrslitum. En því miður varð hún fyrir því óláni að meiðast í seríunni á móti Haukum. Eitthvað sem var ekki á allra vitorði og fór framhjá flestum. Við heyrðum aðeins í Hrafnhildi Hönnu og fengum hana til að segja okkur frá meiðslunum. "Eins og einhverjir hafa væntanleg frétt að þá sleit ég fremra krossband í vor. Ég náði að taka örlítið þátt í úrslitakeppninni eftir langa endurhæfingu á hinu hnénu, en það endaði því miður ekki betur en svo fyrir mig að krossbandið slitnaði. Þrátt fyrir þetta svekkelsi þá var virkilega gaman að ná að komast aðeins inn á völlinn eftir mjög langt tímabil í meiðslum. Stefnan var að ná að spila á komandi tímabili en ljóst er að svo verður ekki. Ég er búin í aðgerð og er á fullu í endurhæfingu og einbeitingin mín er á því að ná hnjánum mínum góðum. Hvað verður með handboltann verður svo bara að koma í ljós" Handkastið sendir batakveðjur á Hrafnhildi Hönnu og vonar að þessari meiðslasögu sé lokið og hún snúi aftur á völlinn þegar hún er búin að jafna sig á meiðslunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.