Leikstjórnandinn, Aron Daði Stefánsson hefur verið kynntur í Breiðholtinu en hann gengur í raðir ÍR á láni frá uppeldisfélagi sínu KA. Töluvert er síðan Aron Daði fékk félagaskipti hjá ÍR og hafði Handkastið áður greint frá því að hann væri genginn í raðir félagsins. Nú hefur ÍR hinsvegar kynnt hann á samfélagsmiðlum sínum. ,,Aron Daði Stefánsson hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild ÍR. Hann kemur til félagsins frá KA þar sem hann er fæddur og uppalinn. Aron er fæddur árið 2007 og leikur í stöðu miðjumanns. Við ÍR-ingar erum glaðir með komu Arons og mun hann smellpassa í ungan og efnilegan leikmannahóp meistaraflokks karla," segir í tilkynningunni frá ÍR. ÍR féll úr Olís-deild karla á síðustu leiktíð eftir tveggja ára veru í deild þeirra bestu og leikur í Grill66-deildinni á komandi tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.