
Hægri hornamaðurinn, Andri Freyr Friðriksson er kominn norður á Akureyri og leikur með KA í Olís-deildinni á láni frá Aftureldingu. Þetta staðfesti Hrannar Guðmundsson í samtali við Handkastið í vikunni. Hrannar segir að Andri Freyr verði hjá KA til áramóta. KA tilkynnti Andra sem nýjan leikmann liðsins fyrr í dag. ,,Andri er metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem mun klárlega koma sterkur inn í lið okkar KA-manna fyrir komandi handboltavetur. Andri er mjög góður slúttari í horninu og er auk þess öflugur hraðaupphlaupsmaður og alvöru keppnismaður. Andri Freyr er nú þegar mættur norður og búinn að taka nokkrar æfingar með liðinu," segir í tilkynningunni frá KA. ,,Við erum virkilega ánægðir með að fá Andra Frey í KA liðið okkar. Andri er metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem mun klárlega hjálpa liðinu. Að sama skapi er ég afskaplega ánægður með þessa samvinnu við Aftureldingu, enda er um mikið þroskatækifæri að ræða fyrir ungan handboltamann að flytja til Akureyrar," sagði Andri Snær Stefánsson þjálfari KA og hélt áfram. ,,Andri er heilsteyptur strákur sem smellpassar í okkar lið, hefur æft með okkur að undanförnu og er tilbúinn í slaginn með KA. Við erum með mikinn metnað í handboltanum okkar og verður gaman að vinna með Andra." Andri Freyr skoraði átta mörk í 10 leikjum fyrir Aftureldingu í Olís-deildinni á síðustu leiktíð en hann var hinsvegar næst markahæsti leikmaður Hvíta riddarans í Grill66-deildinni með 70 mörk í 22 leikjum. Andri er uppalinn hjá Aftureldingu Andri Freyr skoraði sjö af átta mörkum sínum í Olís-deildinni á síðustu leiktíð í einum leik, í sigri Aftureldingar gegn ÍR um miðjan desember mánuð. Andra er ætlað að fylla skarð georgíska landsliðsmannsins, Giorgi Dikhaminjia sem enn er að glíma við meiðsli frá því á síðustu leiktíð og bendir allt til þess að hann verði frá keppni næstu mánuði í það minnsta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.