

Selfoss hafði betur gegn Víkingi í fyrsta leik Ragnarsmóts karla sem haldið er á Selfossi ár hvert. Selfoss hóf leikinn af miklum krafti og fór inn í hálfleik með sex marka forystu, 17-11 en í stöðunni 10-9 fékk Ásgeir Snær Vignisson rautt spjald. Víkingar virtust vankast við það og nýttu Selfyssingar sér það og breyttu stöðunni í 17-11 á rúmlega sjö mínútum. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari Víkings virtist hafa farið vel yfir hlutina fyrir sínum mönnum í hálfleik. Um miðbik seinni hálfleiks var staðan 25-23 en Víkingar náðu aldrei að jafna metin. Lokatölur 30-29 Selfossi í vil og fyrsti sigur þeirra á mótinu í höfn. Víkingar eru nýliðar í Olís-deildinni á komandi tímabili en Páll Þór Kolbeins var markahæstur í þunnskipuðu liði Víkings í kvöld með sex mörk. Kristján Helgi Tómasson skoraði fjögur mörk, ásamt Kristófer Snæ Þorgeirssyni og Sigurði Páli Matthíassyni. Hjá Selfossi var Valdimar örn Ingvarsson markahæstur með sex mörk, Tryggvi Sigurberg Traustason skoraði fjögur mörk. Alvaro Mallols skoraði þrjú mörk ásamt Antoni Breka Hjaltasyni og Jónasi Karli Gunnlaugssyni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.