

ÍBV gerði góða ferð á Selfoss í dag og vann Víking nokkuð sannfærandi með 20 marka mun, 49-29 en Víkingur eru nýliðar í Olís-deildinni á komandi tímabili. Í gær tapaði Víkingur með 19 mörkum gegn Grill66-deildarliði Selfoss, 39-20. Um miðjan fyrri hálfleik leiddi ÍBV með fimm mörkum 13-8 en Sara Björg Davíðsdóttir og Ivana Meincke fóru mikið í markaskorun Víkings og skoruðu fyrstu sex mörk liðsins. Töluvert vantaði í lið ÍBV í leiknum í kvöld en það hafði ekki áhrif á markaskorun liðsins í fyrri hálfleik því þegar komið var í hálfleikinn hafði liðið skorað 26 mörk gegn 19. ÍBV gaf síðan í í seinni hálfleiknum og uppskar eins og fyrr segir tuttugu marka sigur 49-29. Amelía Dís Einarsdóttir og Sandra Erlingsdóttir voru markahæstar í liði ÍBV með níu mörk hvor. Andrea Jacobsen skoraði átta og Birna Berg Haraldsdóttir fimm. Ásta Björt Júlíusdóttir skora fimm mörk ásamt Klöru Káradóttur. Tara Sól Úranusdóttir varði 5 skot og Sigurrós Sverrisdóttir 1 í sínum fyrsta meistaraflokks leik. Hjá Víking Ivana Meincke markahæst á línunni með níu mörk. Sara Björg Davíðsdóttir skoraði sex mörk og Svava Lind Gísladóttir skoraði fimm. Anita Muratovic skoraði fjögur mörk fyrir Víking.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.