Anita Muratovic er gengin til liðs við kvennalið Víkings. Muratovic kemur frá Svartfjallalandi og er leikstjórnandi sem segist spennt fyrir því að takast á við nýja áskorun á Íslandi. Það var umboðsmaður hennar sem vakti fyrst athygli hennar á möguleikanum á að koma til Íslands og ganga til liðs við Víking. „Umboðsmaðurinn minn benti mér á þetta tækifæri og sagði mér góða hluti um félagið og íslenskan handbolta. Eftir að hafa kynnt mér þetta betur fannst mér þetta vera gott skref fyrir mig og ákvað því að koma til Íslands.“ Áður en ákvörðunin var tekin ræddi Muratovic við fólk sem þekkir til íslenska handboltans og segist hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð sem gerði hana enn spenntari fyrir þessu tækifæri. „Ég veit að deildin er sterk og samkeppnin mikil og að Ísland á sér mikla handboltahefð. Hér eru mörg góð lið og góðir leikmenn og ég hlakka til að upplifa deildina sjálf og sjá hvernig getustigið er.“ Muratovic kemur frá Svartfjallalandi og er því vön stórbrotinni náttúru. Hún segir Ísland þó bjóða upp á eitthvað allt annað en hún þekkir að heiman. „Ég vissi að Ísland væri fallegt land með ótrúlega náttúru og landslag. Ég kem frá Svartfjallalandi þannig að ég er líka vön fallegri náttúru, en Ísland er klárlega eitthvað allt annað og nýtt fyrir mig. Ég hlakka til að skoða landið og kynnast því hvernig er að búa hér.“ Á vellinum leikur Muratovic sem leikstjórnandi og vill vera mikið með boltann og skapa fyrir liðsfélaga sína og leggur mikið upp úr því að taka mikla ábyrgð í sóknar og varnarleik liðsins. „Ég kom til Íslands á fimmtudaginn. Við erum þegar búin að taka tvær æfingar og byrjuð að undirbúa okkur fyrir komandi tímabil. Ég er mjög ánægð með að vera komin og spennt að byrja með liðinu.“ Markmiðin fyrir fyrsta tímabilið með Víkingi eru fyrst og fremst að hjálpa liðinu að ná árangri. „Aðalmarkmiðið mitt er að hjálpa liðinu að eiga gott tímabil og ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Persónulega vil ég bæta mig sem leikmaður, aðlagast íslenskum handbolta hratt og leggja eins mikið af mörkum til liðsins og ég get. Ég er mjög spennt og full tilhlökkunar fyrir tímabilinu og vona að við getum áorkað frábærum hlutum saman.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.