Króatíska skyttan Dora Pajic gekk á dögunum til liðs við kvennalið Stjörnunnar. Pajic hefur um nokkurt skeið haft hug á því að færa sig út fyrir heimalandið og segir að nú hafi einfaldlega skapast rétti tímapunkturinn til að taka skrefið. „Löngunin til að fara út og spila utan Króatíu hefur verið til staðar í töluverðan tíma. Vegna námsins og meiðsla sem ég glímdi við hafði ég hins vegar ekki tækifæri til þess fyrr. Nú þegar ég er að ljúka háskólanámi kom þetta tækifæri upp og ég ákvað að grípa það. Mér fannst þetta vera rétti tíminn fyrir nýtt skref, bæði á íþróttaferlinum og persónulega.“ Áður en Pajic tók endanlega ákvörðun lagði hún áherslu á að afla sér eins mikilla upplýsinga og hægt var um íslenskan handbolta og nýja félagið. „Ég ræddi við fólk sem ég treysti og reyndi að kynna mér nýja umhverfið og handboltann á Íslandi eins vel og ég gat. Ég ræddi einnig við þjálfara Stjörnunnar um væntingar mínar, hlutverk mitt í liðinu og hvernig starfið er hjá félaginu.“ Hún segist búast við hröðum og líkamlega krefjandi handbolta í íslensku deildinni og segist hlakka til að upplifa deildina og mæta nýjum andstæðingum. Lífið á Íslandi verður töluvert frábrugðið því sem Pajic á að venjast í Króatíu og hún nefnir meðal annars veðrið, tungumálið og birtuna sem helstu breytingarnar. „Ég veit að lífið á Íslandi verður nokkuð öðruvísi en það sem ég þekki frá Króatíu. Menningin, maturinn, veðrið og tungumálið eru öðruvísi og mér finnst sérstaklega áhugavert hversu mikill munur er á dagsbirtu og myrkri eftir árstíðum.“ „Það tekur auðvitað einhvern tíma að venjast þessu en ég hlakka í raun til þess. Þetta er frábært tækifæri til að kynnast alveg nýrri menningu og öðruvísi lífsstíl.“ Pajic getur leikið allar þrjár stöðurnar fyrir utan og segir fjölhæfnina hafa kennt sér að aðlagast ólíkum aðstæðum á vellinum. Hraðinn er hennar helsta vopn að eigin sög og vill hún láta taka til sín bæði og vörn og sókn. Pajic kom til Íslands fyrir um þremur vikum og segir að fyrstu kynni hennar af Stjörnunni hafi verið mjög góð. „Mér líður mjög vel í nýja umhverfinu. Stelpurnar og þjálfarateymið eru frábær og hafa tekið mjög vel á móti mér frá fyrsta degi. Þau hafa hjálpað mér mikið við að aðlagast eins auðveldlega og hægt er.“ „Ég er auðvitað enn að kynnast umhverfinu og lífinu hér en hingað til er ég mjög ánægð og hlakka til þess sem fram undan er.“ Markmið hennar fyrir fyrsta tímabilið með Stjörnunni eru fyrst og fremst að falla vel inn í liðið og hjálpa því að ná eins langt og mögulegt er. „Við tökum þetta skref fyrir skref en ég trúi því að við getum náð frábærum hlutum saman.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.