Þríeykið hjá ÍBV allt í öllu í sigri gegn Selfossi
Sævar Jónasson

Kvennalið íBV hafði betur gegn Selfossi í Ragnarsmótinu í kvöld með einu marki 36-35 í miklum markaleik. Selfoss leiddi í hálfleik með einu marki 19-18 en ÍBV reyndust sterkari aðilinn í seinni hálfleiknum.

Jafnræði var með á liðunum í fyrri hálfleik en ÍBV var 10-7 yfir um miðbik fyrri hálfleiksins. Þá tók Eyþór Lárusson þjálfari Selfoss leikhlé og stillti saman strengi liðsins og það tókst. Selfoss var skyndilega búið að jafna í stöðunni 11-11. Selfoss náði mest þriggja marka forystu í fyrri hálfleik.

Í seinni hálfleik var jafnt á flestum tölum þangað til tíu mínútur lifði leiks en þá náði ÍBV fjögurra marka forystu, 34-30. Selfoss klóraði í bakkann og lokatölur 36-35.

Þríeykið í liði ÍBV var allt í öllu í sóknarleik liðsins. Andrea Jacobsen skoraði tíu mörk, Sandra Erlingsdóttir skoraði átta líkt og Birna Berg Haraldsdóttir. Klara Káradóttir skoraði síðan fimm mörk.

Hjá Selfossi var Perla Ruth Albertsdóttir markahæst með átta mörk, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir skoraði sjö og þær Eva Lind Tyrfingsdóttir og Hulda Hrönn Bragadóttir skoruðu sex mörk hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top