Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir Aftureldingu. Síðasta tímabil: Afturelding byrjaði tímabilið af miklum krafti í fyrra og voru í toppsæti deildinnar framan af. Það fór hins vegar að halla undan fæti eftir áramót og var stigasöfnun liðsins mikil vonbrigði undir loka tímabilsins. Liðið datt út í 8 liða úrslitum gegn Haukum og náðu ekki að tryggja sér í Final 4 í bikarkeppninni. Yngri leikmenn fengu stærra hlutverk þetta árið sem mun nýtast þeim vel á komandi tímabili. Það fór svo að Stefán Árnason þjálfari liðsins fékk stígvélið eftir tímabilið. Þjálfarinn: Hrannar Guðmundsson og Ingimundur Ingimundarson tóku við liðinu í sumar af Stefáni Árnasyni sem var látinn fara eftir síðasta tímabil. Erfiðlega gekk að finna eftirmann hans en það var svo um mitt sumar sem tilkynnt var að Hrannar og Ingimundur myndu taka við. Hrannar þekkir vel til í Mosfellsbænum og mun Ingimundur koma með reynslu sína sem leikmaður inn í hópinn og verður forvitnilegt að sjá hvernig þeir munu vinna saman í vetur. Breytingar: Fylgist með: Framtíðin: Sjá einnig:
Hákon Daði Styrmisson og Hans Jörgen Ólafsson gengu til liðs við Mosfellinga í sumar eftir að liðið hafði misst Ihor Kopyshynskyi, Ágúst Inga Óskarsson og Sveinur Ólafsson. Ihor hefur verið einn besti vinstri hornamaður deildinnar undanfarin en Hákon Daði mun koma til með að fylla það skarð.
Lykilmenn:
Einar Baldvin Baldvinsson, Hákon Daði Styrmisson, Harri Halldórsson
Stefán Magni Hjartarson gæti orðið einn besti hægri hornamaður deildarinnar í vetur. Hefur hægt og bítandi unnið sér stærra hlutverk í liði Aftureldingar en meiðsli hafa spilað inn í. Stefán Magni fór á fund með stjórn Aftureldingar í sumar og sagðist hafa áhuga að leita annað en ekkert varð úr því. Spurning hvort hugurinn og hausinn sé farið að leita eitthvað annað hjá þessum bráðefnilega leikmanni.
Harri Halldórsson einn efnilegasti leikmaður deildarinnar og að mörgum talinn vera einn skemmtilegasti leikmaður deildarinnar á vellinum. Fjölhæfur leikmaður sem getur spilað margar stöður á vellinum. Hefur verið í 2006 landsliði Íslands síðustu ár og var í stóru hlutverki á Evrópumótinu í sumar. Var í stóru hlutverki á síðustu leiktíð og verður í enn stærra hlutverki í ár, eftir að Ágúst Ingi og Sveinur yfirgáfu Mosfellsbæinn. Gæti orðið hans síðasta tímabil á Íslandi spili hann vel í vetur.
Við hverju má búast:
Það verður verkefni nýs þjálfarateymis að finna stöðuleika í Mosfellsbænum. Liðið var alltof heitt eða kalt á síðasta tímabili og tapaði mikilvægum stigum gegn nýliðum deildinnar í fyrra. Nú er spurningin, hvort heimamaðurinn í brúnni, Hrannar Guðmundsson geti stillt hitavatnslögnina í klefanum. Leikmannabreytingar sumarsins eru nokkurn veginn á pari svo Mosfellingar ættu að búast við því að liðið gæti unnið öll lið deildarinnar á góðum degi auk þess sem Mosfellingar geta látið sig dreyma um atlögu að bikar titli.
Umfjöllun um karlalið Vals

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.