Fimm markmenn sem gætu fyllt skarð Daníels Freys
Sævar Jónasson

FH-ingar urðu fyrir mikilli blóðtöku á dögunum þegar annar af markvörðum liðsins, Daníel Freyr Andrésson sleit hásin á æfingu liðsins í undirbúningi sínum fyrir Olís-deildina sem hefst fimmtudaginn 3.september.

Ljóst er að um mikið áfall er að ræða fyrir FH-inga en fyrir er liðið með Jón Þórarin Þorsteinsson og Jóhannes Andra Hannesson ungan og efnilegan markvörð, fæddan árið 2008.

Daníel Freyr með slitna hásin

Handkastið hefur tekið saman fimm markverði sem Aron Pálmarsson þjálfari FH gæti mögulega verið búinn að athuga eða gæti athugað fyrir komandi tímabil.

Fimm markmenn sem gætu fyllt skarð Daníels Freys:

Hreiðar Levy Guðmundsson
Var markmannsþjálfari Aftureldingar í fyrra og lék síðast með Val í Olís-deild karla tímabilið 2019-2020. Það er marg um talað þessa dagana í hversu góðu formi Hreiðar Levy er í, en hvort það sé ávísun á góða markvörslu hjá fasteignasalanum er síðan hægt að deila um. Sonur hans, Guðmundur Levy er genginn í raðir FH frá Þór og þarna gæti myndast tækifæri fyrir þá feðga að spila saman.

Anton Máni Francisco Helderson
Markvörður 2008 landsliðsins Íslands og Vals en hann er fæddur árið 2008 og hefur staðið í marki 3.flokks Vals og Vals 2 í Grill66-deildinni. Er ekki nálægt því að fá tækifæri með Val í Olís-deild karla og Valsarar gætu séð hag sinn í því að lána hann í FH.

Alexander Ásgrímsson
Markvörður 2006 landsliðsins Íslands og ÍR í Grill66-deildinni. Er að mörgum talinn einn efnilegasti markvörður landsins og reyndu Framarar að klófesta í Alexander fyrr í sumar. ÍR-ingar gætu séð hag sinn í því að lána hann í Olís-deildina tryggi þeir sér annan markmann í staðin í baráttunni Í Grill66-deildinni.

Birkir Fannar Bragason
Hætti sem markvörður FH fyrir síðustu leiktíð og varð markmannsþjálfari liðsins. Kominn yfir léttasta skeiðið en gæti hæglega hjálpað FH-ingum í þeirri stöðu sem liðið er í, um þessar mundir.

Tengslanet Arons erlendis
Nýtir Aron Pálmarsson sér sitt tengslanet í Danmörku, Þýskalandi, Ungverjalandi eða Spáni og reynir að fá ungan og efnilegan markvörð frá fyrrum félögum sínum á sínum leikmannaferli. Við höfum séð, Martin Nagy koma í íslensku deildina á sínum tíma frá Pick Szeged til að fá reynslu. Er Álaborg, Kiel, Veszprém eða Barcelona með unga markmenn á sínum snærum sem gætu hjálpað FH í vetur?

    Nýjustu fréttir

    HAFA SAMBAND

    Handkastið.net

    Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

    Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


    handkastid@handkastid.net

    Scroll to Top