Sonur Einars Hólmgeirs semur við HK
HK

Hinn ungi og efnilegi, Viktor Bjarki Einarsson hefur skrifað undir samning við HK og gerir tveggja ára samning við félagið.

Viktor Bjarki sem er fæddur árið 2008 er uppalinn í HK en hann lék eitt ár með 4.flokki Stjörnunnar á sínum tíma.

,,Viktor Bjarki er ungur og gríðarlega efnilegur leikmaður sem HK bindur miklar vonir við til framtíðar. Hann hefur alla burði til að taka stór skref á næstu árum og það er mikið fagnaðarefni að þau skref verði tekin í HK búningnum."

,,Það er mikil ánægja innan félagsins með að Viktor hafi valið að halda áfram vegferðinni með HK og við hlökkum mikið til að fylgjast með honum vaxa og þróast sem leikmanni," segir í tilkynningunni frá HK.

Viktor Bjarki hefur verið að leika með HK á undirbúningstímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top