

KA/Þór vann Víking með sex mörkum í fyrsta leik sínum á Ragnarsmóti kvenna í kvöld en þetta var á sama tíma þriðji leikur Víkings sem töpuðu öllum leikjum sínum á mótinu. KA/Þór voru fámennar í leiknum í kvöld með aðeins tíu leikmenn á leikskýrslu en þær voru 17-13 yfir í hálfleik eftir að staðan hafi verið jöfn 13-13. KA/Þór hélt forystunni út allan leikinn og uppskar að lokum sex marka sigur, 29-23. Víkingur minnkaði muninn í tvö mörk í stöðunni 20-18 í seinni hálfleik en nær komust þær ekki. Jóan Rúnadóttir var markahæst í liði KA/Þór með átta mörk og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir skoraði sjö. Hafrún Linda Guðmundsdóttir skoraði fimm mörk og Agata Djurhuus á línunni skoraði fjögur mörk. Hjá Víking var Sara Björg Davíðsdóttir markahæst með sjö mörk. Anita Muratovic skoraði fimm og Ivana Meincke skoraði fjögur ásamt Svövu Lind Gísladóttur. KA/Þór mætir ÍBV á morgun og loks Selfoss í lokaleik Ragnarsmótsins á laugardaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.