Nýir stýrimenn taka við eftir sögulegan árangur
Egill Bjarni Friðjónsson

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild kvenna hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir kvennalið ÍR.

Síðasta tímabil:
ÍR átti sitt besta tímabil í efstu deild frá upphafi í fyrra þegar liðið endaði í 4. sæti undir stjórn Grétars Áka. Grétar er núna hættur með liðið eftir mikið fjaðrafok í sumar og það verður áskorun fyrir liðið að halda sama dampi og það sýndi í fyrra. Þá er mjög stór póstur farinn úr liðinu með Katrínu Tinnu Jensdóttur sem hélt út í atvinnumennsku.

Þjálfarinn:
Davíð Georgsson tók við liðinu í sumar og verður Björgvin Þór Hólmgeirsson honum til aðstoðar. Báðir á leið inn í sitt fyrsta tímabil sem þjálfarar í meistaraflokki kvenna. Grétar Áki Andersen stýrði liðinu í fyrra og náði besta árangri ÍR í sögunni. Það var hinsvegar ekki nóg og það verður spennandi að sjá nýja þjálfara bæta þann árangur.

Breytingar:
Auk nýrra þjálfara kom Elísa Helga Sigurðardóttir frá Haukum í markið. Katrín Tinna Jensdóttir verður ekki áfram en hún var algjör lykilmaður í fyrra og verður erfitt fyrir ÍR að fylla það skarð.

Lykilmenn:

Sara Dögg Hjaltadóttir, Matthildur Lilja Jónsdóttir, Sylvía Sigríður Jónsdóttir

Fylgist með: Sif Hallgrímsdóttir, fædd 2006 og uppalin í Haukum. Hún kom gríðarlega sterk inn í ÍR liðið síðasta vetur og lokaði markinu á stórum köflum. Hún hefur nú fengið aukna samkeppni með komu Elísu Helgu og fyrir var Ingunn María Brynjarsdóttir svo þær munu þrjár deila markinu. Það verður áhugavert að sjá hvort Sif fái traustið áfram.

Framtíðin:
Katrín Ásta Jóhannsdóttir, dóttir Sólveigar Láru, sem fædd er árið 2010 hefur spilað með liðinu á undirbúningstímabilinu auk þess sem hún spilaði með U16 ára landsliði Íslands í sumar. Það verður spennandi að sjá hvort hún fái tækifæri með liðinu í vetur en Katrín Ásta er gríðarlegt efni.

Við hverju má búast:

ÍR eru með fámennan hóp og mega ekki við miklum skakkaföllum. Liðið hefur ekki fyllt skarð Katrínar Tinnu og gæti það reynst liðinu erfitt. Búast má við að liðið nái ekki sömu hæðum og í fyrra en auk þess þarf liðið að fylla skarð Vöku Lífar Kristinsdóttur sem sleit krossband á síðustu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top