
Vinstri hornamaðurinn, Jón Karl Einarsson hefur fengið félagaskipti yfir til nýliða Víkings í Olís-deild karla frá uppeldisfélagi sínu Haukum. Jón Karl sem er uppalinn Haukamaður og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk félagsins tímabilið 2019-2020. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn á ferlinum hjá honum. Hann lék með HK í Olís deildinni á láni frá Haukum tímabilið 2023-2024. Tímabilið 2024/2025 lék hann með U-liði Hauka í Grill 66 deildinni þar sem hann endaði sem markahæsti leikmaður deildarinnar með 143 mörk í 15 leikjum. Í fyrra lék hann bæði með Haukum og Haukum 2 í Olís og Grill66-deildinni en nú er ljóst að hann leikur með Víkingi í Olís-deildinni. Jón Karl er ekki eini leikmaðurinn sem hefur fengið félagaskipti yfir til Víkings í dag því örvhenta skyttan, Elías Ingi Gíslason hefur fengið skipti yfir til félagsins frá HK.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.