
Nú rétt í þessu var að ljúka leik Selfoss og ÍBV í karlaflokki á Ragnarsmótinu. Eyjamenn voru alltaf skrefi framar í fyrri hálfleik en Selfyssingar komust reyndar yfir í 8-7 eftir korters leik. Eftir það voru ÍBV mun betri og fóru inn með 10-14 forskot inn í hálfleikinn. Í seinni hálfleik tóku Eyjamenn öll völd á leiknum og náðu mest 11 marka forskoti. Lokatölur 22-31 fyrir ÍBV. Kafsigling á Selfossi hjá Eyjapeyjum. Einar Bent Bjarnason var markahæstur hjá Eyjamönnum með 8 mörk. Petar varði 7 skot. Hjá Selfossi var Tryggvi Sigurberg markahæstur með 4 mörk. Philip Seidemann og Alexander Hrafnkelsson vörðu samtals 14 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.