Í kvöld mættust ÍBV og KA/Þór á Ragnarsmótinu í kvennaflokki. KA/Þór voru í síðasta leik á Ragnarsmótinu einungis með 10 leikmenn á skýrslu en nú höfðu bæst við 2 leikmenn þær Rakel Sara Elvarsdóttir og Kolbrún Gígja Einarsdóttir. Eyjakonur höfðu gríðarlega yfirburði í leiknum frá fyrstu mínútu. Eftir 15 mínútur var staðan 9-3 fyrir þær og í hálfleik var staðan 17-9. Í seinni hálfleik hélt það sama upp á teningunum og var sigurinn aldrei í hættu hjá ÍBV. KA/Þór stelpur gerðu reyndar vel og náðu að minnka muninn niður í 3 mörk á tímabili. En lokatölur urðu 28-23 fyrir ÍBV. Hjá ÍBV var Sandra Erlings markahæst með 9 mörk og Ólöf Maren varði 9 skot. Hjá KA/Þór var Bergrós Ásta markahæst með 6 mörk og samtals vörðu þær Ingibjörg og Ástrós 13 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.