Eyjamenn með stórsigur á ÍR-ingum
Egill Bjarni Friðjónsson

ÍBV mætti ÍR á Ragnarsmótinu í fyrr í dag.

Eyjamenn komu mjög sterkir til leiks gegn ÍR og náðu strax góðri forystu í fyrri hálfleik og leiddu örugglega með 11 mörkum þegar liðin gegnu til búningsherbergja, 22-11.

ÍBV slógu ekkert af bensíngjöfinni í síðari hálfleik og keyrðu gjörsamlega yfir Breiðhyltinga og unnu leikinn að lokum með 20 marka mun, 45-25.

Allir útileikmenn ÍBV skoruðu mark í dag og voru Jason Stefánsson og Kristófer Ísak Bárðarson 7 mörk hvor. Ungur og bráðefnilegur leikmaður ÍR, Bjartur Fritz Bjarnason, var markahæstur hjá ÍR með 6 mörk en næstur kom Nökkvi Blær Hafþórsson með 5 mörk.

Petar Jokanovic varði 13 skot í dag og Gabríel Ari Davíðsson varði 5 skot fyrir Eyjamenn en í markinu hjá ÍR stóðu Gísli Hrafn Valsson sem varði 4 skot og Andri Snær Sigmarsson kom næstur með 3 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top