Sneri aftur eftir 330 daga
CHRISTIAN CHARISIUS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Emil Madsen sneri í gærkvöldi aftur á handboltavöllinn eftir 330 daga fjarveru vegna alvarlegra hnémeiðsla þegar THW Kiel vann Pick Szeged 42–32 í síðasta æfingaleik sínum fyrir nýtt tímabil.

Madsen, sem er 25 ára, kom inn á í fyrri hálfleik og var ekki lengi að láta að sér kveða. Hann skoraði fljótlega eftir innkomuna og endaði leikinn með fjögur mörk.

Alls voru 6.700 áhorfendur í MERKUR Ostseehalle þegar Madsen lék sinn fyrsta leik fyrir Kiel í tæplega 11 mánuði.

„Þetta var bara æfingaleikur, en við skemmtum okkur mjög vel. Og það að ég sé kominn aftur gerir mig einfaldlega mjög glaðan,“ sagði Madsen á heimasíðu Kiel.

Kiel hefur þar með lokið undirbúningi sínum fyrir tímabilið. Liðið hefur leik í þýsku 1. deildinni á fimmtudaginn þegar TBV Lemgo Lippe kemur í heimsókn en um er að ræða opnunarleik deildarinnar. Füchse Berlin og MT Melsungen mætast einnig á fimmtudaginn, klukkutíma eftir að leik Kiel og Lemgo hefst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top