Emil Madsen sneri í gærkvöldi aftur á handboltavöllinn eftir 330 daga fjarveru vegna alvarlegra hnémeiðsla þegar THW Kiel vann Pick Szeged 42–32 í síðasta æfingaleik sínum fyrir nýtt tímabil. Madsen, sem er 25 ára, kom inn á í fyrri hálfleik og var ekki lengi að láta að sér kveða. Hann skoraði fljótlega eftir innkomuna og endaði leikinn með fjögur mörk. Alls voru 6.700 áhorfendur í MERKUR Ostseehalle þegar Madsen lék sinn fyrsta leik fyrir Kiel í tæplega 11 mánuði. „Þetta var bara æfingaleikur, en við skemmtum okkur mjög vel. Og það að ég sé kominn aftur gerir mig einfaldlega mjög glaðan,“ sagði Madsen á heimasíðu Kiel. Kiel hefur þar með lokið undirbúningi sínum fyrir tímabilið. Liðið hefur leik í þýsku 1. deildinni á fimmtudaginn þegar TBV Lemgo Lippe kemur í heimsókn en um er að ræða opnunarleik deildarinnar. Füchse Berlin og MT Melsungen mætast einnig á fimmtudaginn, klukkutíma eftir að leik Kiel og Lemgo hefst.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.