14 ára undrabarn fær tækifæri hjá Porto
Porto

Armando Coelho er aðeins 14 ára gamall en er þegar farinn að fá tækifæri með stórliði FC Porto.

Hinn gríðarlega efnilegi, Coelho kom við sögu í sínum öðrum æfingaleik með aðalliðinu á dögunum þegar Porto vann Braga, 39-27.

Coelho er uppalinn hjá Porto og leikur sem vinstri skytta. Hann er hluti af hópi ungra leikmanna úr akademíu félagsins sem Carlos Martingo, nýr aðalþjálfari Porto, telur tilbúna til að fá tækifæri með meistaraflokknum.

Martingo tók við Porto í sumar eftir að hafa verið aðstoðarmaður Magnus Andersson og hefur þegar gefið Coelho tækifæri. Hann hafði áður komið við sögu í æfingaleik gegn Dinamo Búkarest, sem leikur í Meistaradeild Evrópu.

Þrátt fyrir ungan aldur er Coelho nú hluti af meistaraflokki Porto í undirbúningi fyrir komandi tímabil. Martingo ætlar þó að fara varlega með hinn unga leikmann og hefur sagt að ætlunin sé að gefa honum smám saman tækifæri til að spila með aðalliðinu.

Markmiðið sé að Coelho geti fengið einhverjar mínútur með liðinu á næstunni, að því gefnu að hann haldi áfram að leggja hart að sér á æfingum. Coelho sjálfur segir upplifunina hafa verið ótrúlega.

„Þetta var frábært, að spila með liðsfélögum sem hefðu enn getað spilað með föður mínum fyrir ekki svo löngu síðan. Þetta er draumur sem verður að veruleika,“ sagði Coelho. Faðir hans er Eduardo Filipe, fyrrverandi portúgalskur landsliðsmaður og einn þekktasti handknattleiksmaður Portúgals á sínum tíma.

Það er sérstakt að sjá Armando, aðeins 14 ára gamlan, stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki Porto. Sjálft félagið hefur vakið athygli á honum á samfélagsmiðlum og hvetur fólk til að muna eftir nafninu hans.

„Munið eftir þessu nafni,“ segir Porto einfaldlega um hinn unga leikmann. Þorsteinn Leó Gunnarsson er einnig á mála hjá Porto og er því liðsfélagi Coelho.

Það er sjaldgæft að sjá leikmann á þessum aldri fá tækifæri með liði á borð við Porto, sem leikur reglulega í Evrópudeildum og berst um titla í heimalandinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top