Blomberg-Lippe tryggði sér Ofurbikarinn eftir vítakeppni
ANGELIKA WARMUTH / AFP

HSG Blomberg-Lippe vann Borussia Dortmund í þýska Ofurbikarnum í kvennaflokki í dag eftir æsispennandi leik í SAP Garden í München. Blomberg-Lippe hafði betur 26–24 eftir vítakeppni. 

Staðan var jöfn, 9–9, í hálfleik og eftir 60 mínútur var enn jafnt 22–22. Því þurfti vítakeppni til að knýja fram úrslit. Þar hafði Blomberg-Lippe sterkari taugar og vann vítakeppnina 4–2. 

Þetta er fyrsti Ofurbikartitillinn í sögu Blomberg-Lippe og annar titill félagsins á árinu eftir að liðið varð þýskur meistari í fyrsta sinn síðasta vor. 

22 August 2026, Bavaria, Munich: Women's Handball: DHB Super Cup, HSG Blomberg-Lippe vs. Borussia Dortmund, Final, SAP Garden. The HSG Blomberg-Lippe team celebrates its victory. Photo: Angelika Warmuth/dpa (Photo by ANGELIKA WARMUTH / dpa Picture-Alliance via AFP)

Markvörðurinn Nicole Roth átti stóran þátt í sigrinum og hélt Blomberg-Lippe á floti með mikilvægum vörslum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Nieke Kühne og Nuria Bucher voru markahæstar hjá Blomberg með sex mörk hvor. 

Díana Dögg Magnúsdóttir kom við sögu hjá Blomberg-Lippe og skoraði eitt mark. Elín Rósa Magnúsdóttir var hins vegar ekki í leikmannahópi liðsins í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top