FH er áhugaverð tilraunastofa
(Raggi Óla)

Aron Pálmarsson hefur flest það sem þarf til að verða afburðaþjálfari: einstakan leikskilning, gríðarlega reynslu og innsæi sem fáum er gefið. En sagan kennir okkur að það eitt dugir ekki alltaf til. Að vera frábær leikmaður og að geta miðlað því sem maður sér, til annarra eru tvö ólík hlutverk.

Það er samt eitthvað sérstaklega áhugavert og spennandi við að sjá Aron Pálmarsson stíga sín fyrstu skref sem aðalþjálfari. Fáir íslenskir leikmenn hafa spilað leikinn jafn vel og hann. Af þeim sökum er freistandi að ætla að þjálfun liggi beinast við. En þar hefst líka óvissan. Afburðaleikmaður verður ekki sjálfkrafa afburðaþjálfari. Að vera frábær leikmaður og að vera frábær þjálfari er tvennt ólíkt.

Það eru til fjölmörg dæmi um leikmenn sem skildu leikinn betur en flestir aðrir en tókst ekki að færa þann skilning yfir á þjálfarabekkinn.

Frakkinn Didier Dinart er nærtækt dæmi. Sem leikmaður var hann einn fremsti varnarmaður sinnar kynslóðar og lykilmaður í einu sigursælasta landsliði handboltasögunnar. Þjálfaraferillinn hefur hins vegar ekki orðið jafn afgerandi og leikmannaferillinn. Það eitt minnir á að það er ekki sjálfgefið að snilligáfa inni á vellinum flytjist snuðrulaust yfir á hliðarlínuna.

Óli Stef og Valur

Í íslensku samhengi er erfitt að horfa fram hjá Ólafi Stefánssyni. Þegar Ólafur tók við Val árið 2013 fylgdi ráðningunni mikil eftirvænting. Mesti handboltaheili íslenskrar handboltasögu var tekinn við nýju hlutverki sem þjálfari. Að mörgu leyti virtist það eðlilegt framhald af stórkostlegum ferli sem leikmaður. Sú vegferð fór hins vegar ekki eins og vonir stóðu til.

Það er freistandi að sjá ákveðna samsvörun nú. Enn á ný tekur einn snjallasti leikmaður íslenskrar handboltasögu við nýju hlutverki, þar sem ábyrgðin færist frá vellinum yfir á hliðarlínuna. En reynsla Ólafs minnir á að ekkert í þessu er sjálfgefið. Að sjá lausnina er ekki það sama og að kenna hana.

Enginn efast um handboltaskilning Arons. Spurningin er hvort honum takist að miðla honum.

Margt af því sem gerði Aron einstakan sem leikmann virtist honum nánast meðfætt. Hann sá sendingaleiðir sem aðrir sáu ekki, skynjaði augnablikið þegar hægja þurfti á leiknum og vissi nákvæmlega hvenær átti að ráðast á veikleika varnanna.

Þjálfarinn Aron þarf hins vegar að geta brotið þetta niður. Hann þarf að útskýra það sem honum sjálfum kann að hafa þótt sjálfsagt. Hann þarf að fá fimmtán leikmenn til að sjá sömu sviðsmynd, skilja sömu hugmynd og treysta henni þegar á reynir. Að sjá leikinn skýrar en aðrir er eitt. Að fá aðra til að sjá hann með sömu augum er allt annað. Þar liggur líklega stærsta prófið.

FH er áhugaverð tilraunastofa

Aron tekur ekki við starfi þar sem honum gefst langur tími til að læra í kyrrþey. FH er stórt félag með miklar væntingar og þar er ætlast til þess að liðið berjist um titla og sé í fremstu röð. Mistök verða sýnileg, ákvarðanir krufnar og þolinmæðin getur verið takmörkuð.

En Aron kemur ekki inn í félagið sem hver annar þjálfari. Hann er einn af dáðustu sonum FH, uppalinn í félaginu og stór hluti af sögu þess. Hann þekkir umhverfið, menninguna og væntingarnar betur en flestir. Þá hefur ferill hans líka sýnt að hann kann vel við sig undir pressu, þegar spennustigið eykst og mikið liggur undir.

Eitt verður þó nýtt. Að bera endanlega ábyrgð þegar leikurinn þróast ekki eins og hann hafði séð fyrir sér. Sem leikmaður gat Aron sjálfur tekið boltann, gripið inn í og breytt gangi leiksins. Þjálfarinn hefur ekki þann munað.

Þjálfarinn Aron er óskrifað blað

Það er auðvelt að sjá fyrir sér Aron Pálmarsson sem afburðaþjálfara. Handboltagreindin er augljós, reynslan gríðarleg og skilningur hans á leiknum fáum líkur. Í aðdraganda fyrsta leiks Arons sem aðalþjálfara leyfir undirritaður sér að ætla að þjálfarastarfið muni reynast honum eðlislægt og að vegferðin verði farsæl. Flest bendir í þá átt.

En vissulega er óvissa til staðar. Við vitum hvað Aron gat gert svo frábærlega þegar hann sjálfur stóð inni á vellinum og þegar öllu er á botninn hvolft er þjálfarinn Aron Pálmarsson enn óskrifað blað.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top