Gísli Þorgeir fór fyrir Magdeburg í öruggum Ofurbikarsigri
SVEN SIMON / AFP

Magdeburg vann sannfærandi sigur á Füchse Berlin, 38–31, í Ofurbikarnum í Þýskalandi í dag. Magdeburg hafði mikla yfirburði í leiknum og var með fimm marka forskot í hálfleik, 20–15.

Gísli Þorgeir Kristjánsson var algjörlega í lykilhlutverki hjá Magdeburg og langbesti leikmaður liðsins. Hann skoraði níu mörk og átti auk þess fjölmargar stoðsendingar þegar Magdeburg stýrði leiknum frá upphafi til enda.

Albin Lagergren var næstmarkahæstur hjá Magdeburg með átta mörk og var valinn besti leikmaður leiksins að mati dómnefndar á vellinum en að mati Handkastsins var Gísli Þorgeir besti leikmaður vallarins svo því sé haldið til haga.

Þeir Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson höfðu hins vegar hægt um sig. Báðir skoruðu eitt mark.

Hjá Füchse var Mathias Gidsel markahæstur allra á vellinum með tíu mörk, en danska stórskytta liðsins gat ekki komið í veg fyrir öruggan sigur Magdeburg.

Sigurinn er sögulegur fyrir Magdeburg en þetta er fyrsti Ofurbikartitill félagsins undir stjórn Bennet Wiegert. Eftir yfirburði Magdeburg í dag er ljóst að liðið sendi sterk skilaboð í upphafi tímabils.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top