Selfoss með góðan sigur á KA/Þór
Sigurður Ástgeirsson)

Heimakonur í Selfoss tóku á móti KA/Þór á Ragnarsmótinu í dag.

Það var ekki að sjá í leiknum að Selfyssingar leiki í deild neðar en KA/Þór í dag því heimakonur tóku strax frumkvæðið í leiknum og leiddi með 11 mörkum í hálfleik, 19-8.

Selfoss hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og vann að lokum 16 marka sigur á Norðankonum, 38-22. KA/Þór voru fáliðaðar í leik dagsins en einungis 12 leikmenn voru skráðir á leikskýrslu hjá þeim

Hulda Dís Þrastardóttir átti frábæran leik fyrir Selfoss í dag og skoraði 8 mörk en næst á eftir henni kom Arna Kristín Einarsdóttir með 6 mörk. Lydía Gunnþórsdóttir var markahæst hjá KA/Þór með 7 mörk og Hafrún Linda Guðmundsdóttir skoraði 4 mörk.

Selma Þóra Jóhannsdóttir varði 5 skot í marki Selfoss og Dröfn Sveinsdóttir varði 3 skot. Hjá KA/Þór varði Ástrós Bender Mikaelsdóttir 4 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top