Guðni Ingvarsson tekinn inn í Heiðurshöll Selfoss
Selfoss

Guðni Ingvarsson var um helgina tekinn inn í Heiðurshöll handknattleiksdeildar Selfoss fyrir framúrskarandi framlag sitt til félagsins á löngum og farsælum ferli.

Guðni er uppalinn Selfyssingur og lék með meistaraflokki Selfoss á árunum 2007 til 2021, þó með nokkrum stoppum. Alls lék hann 195 leiki fyrir Selfoss og skoraði 362 mörk.

Á ferlinum lék Guðni einnig með ÍBV og Gróttu. Með ÍBV varð hann bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari áður en hann sneri aftur á Selfoss.

Guðni var mikilvægur hlekkur í liði Selfoss á uppgangstímum félagsins og varð Íslandsmeistari með Selfossi árið 2019, þegar félagið varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu sinni.

Þeir sem fyrir voru í heiðurshöll Selfoss eru Ramunas Mikalonis, Hörður Bjarnarson, Sebastian Alexandersson, Ómar Vignir Helgason, Gylfi Már Ágústsson og Atli Kristinsson.

Atli var síðastur þeirra til að bætast í hópinn þegar hann var tekinn inn árið 2025. Hann lék 221 leik fyrir Selfoss og skoraði 885 mörk. Atli lék með félaginu á árunum 2002 til 2016 og hefur síðan verið viðloðandi starfið hjá Selfossi, meðal annars sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks.

Í Heiðurshöllina komast þeir leikmenn sem hafa leikið tíu ár eða lengur með félaginu. Guðni bætist því nú í afar merkan hóp Selfyssinga sem hafa markað djúp spor í sögu handknattleiksdeildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top