ÍBV stóð uppi sem sigurvegari í bæði Ragnarsmóti karla og kvenna sem lauk á Selfossi um helgina. Það var góð vika hjá ÍBV á Ragnarsmótinu en bæði karla- og kvennalið félagsins stóðu uppi sem sigurvegarar þegar mótinu lauk. Þrátt fyrir að karlalið ÍBV hafi hafið mótið með tapi gegn nýliðum Víkings í Olís-deild karla, 27–30 þá dugðu tveir sigrar gegn Selfossi og ÍR þeim til að vinna mótið. Eyjamenn svöruðu síðan með tveimur stórum sigrum. Fyrst lögðu þeir Selfoss að velli, 31–22, og í lokaleik sínum kjöldrógu þeir ÍR, 45–25. ÍBV vann því tvo af þremur leikjum sínum og endaði með +26 í markatölu en Víkingur og Selfoss enduðu með fjögur stig eins og ÍBV. ÍR rak lestina án stiga á botninum. Kvennalið ÍBV byrjaði mótið af krafti og vann Víking, 49–29. Liðið hafði síðan betur í hörkuleik gegn Selfossi 36–35 og ÍBV tryggði sér sigurinn síðan á mótinu með því að vinna KA/Þór, 28–23. Selfoss endaði í 2.sæti með mótsins með fjögur stig, KA/Þór endaði með tvö stig og Víkingur var án stiga. ÍBV fagnaði því sigri í báðum Ragnarsmótunum 2026, bæði hjá körlum og konum. Ragnarsmótið var haldið í 38. sinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.