Hægri hornamaðurinn Sara Dröfn Richardsdóttir verður ekki með Selfossi á komandi tímabili en hún er flutt aftur heim til Vestmannaeyja. Sara Dröfn, sem hefur verið á mála hjá Selfossi undanfarin tvö tímabil hefur glímt við meiðsli og er nú að vinna sig til baka. Hún hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún haldi áfram að spila handbolta. Magnús Stefánsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, segir að Sara Dröfn sé nú í Eyjum og einbeiti sér að því að ná sér eftir meiðslin. „Hún er flutt til Eyja og er að ná sér eftir leiðinleg meiðsli. Ef það tekst, þá gæti hún spilað handbolta aftur,“ sagði Magnús. Sara Dröfn hefur áður leikið með ÍBV og var meðal annars valin leikmaður með mestu framfarirnar hjá kvennaliði félagsins árið 2023. Sara Dröfn fylgdi kvennaliði ÍBV á Selfoss í síðustu viku þar sem liðið vann Ragnarsmótið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.