Heimir Örn aðstoðar Andra Snæ hjá KA í vetur
KA

Heimir Örn Árnason er kominn inn í þjálfarateymi KA og verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks félagsins í vetur. Hann mun starfa með Andra Snæ Stefánssyni, sem er að hefja sitt annað tímabil sem aðalþjálfari liðsins.

Heimir aðstoðaði KA eftir fremsta megni á síðustu leiktíð en kemur nú af fullum krafti inn í þjálfarateymið þegar KA undirbýr sig fyrir komandi tímabil. Einar Rafn Eiðsson var spilandi aðstoðarþjálfari KA á síðustu leiktíð en gekk í raðir FH í sumar.

Þeir Andri Snær þekkja vel til samstarfs enda voru þeir liðsfélagar um árabil, bæði hjá KA og Akureyri Handboltafélagi. ,,Þá unnu þeir einnig lokaverkefni sitt saman í Master Coach-þjálfaranámi á vegum Evrópska handknattleikssambandsins, EHF," segir í tilkynningunni frá KA.

Heimir er uppalinn KA-maður og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki tímabilið 1995-96. Hann varð Íslandsmeistari með KA árið 2002 og lék á ferlinum einnig með Haslum í Noregi, Val, Fylki, Bjerringbro-Silkeborg í Danmörku, Stjörnunni, Akureyri, Hömrunum og KA.

Hann lék 23 landsleiki fyrir Íslands hönd og tók meðal annars þátt í Evrópumótinu í Sviss árið 2006. Heimir var tvívegis valinn besti leikmaður Íslandsmótsins, fyrst tímabilið 2005-06 og svo aftur 2007-08.

Þekking hans á handbolta nær þó víðar en sem leikmaður og þjálfari. Heimir var valinn dómari ársins tímabilið 2016-17 og hefur því séð leikinn frá ólíkum sjónarhornum í gegnum tíðina.

Fyrsti leikur KA í Olísdeildinni verður fimmtudaginn 3. september þegar liðið sækir HK heim í Kórinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top