Hafdís Renötudóttir markvörður Íslands, deildar og bikarmeistara Vals er hægt og rólega að vinna sig aftur inn eftir meiðsli en markvörðurinn er ekki enn kominn á fullt. Hún hefur ekki verið með Val í undirbúningsleikjunum fyrir mót. Valur mætir Haukum í Meistarakeppni HSÍ á föstudaginn klukkan 18:00 og verður leikurinn sýndur í Handboltapassanum og á Livey. Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, segir stöðuna á Hafdísi vera metna frá viku til viku og vonast til þess að hún geti farið að taka meiri þátt á næstunni. „Einnig að koma hægt og rólega tilbaka eftir meiðsli. Staðan metin í hverri viku og mun vonandi fara koma meira inn í þetta á næstunni,“ sagði Anton við Handkastið. Hafdís er einn af lykilmönnum Vals og því er mikilvægt fyrir meistarana að fá hana aftur í fullt stand. Elísabet Millý Elíasardóttir gekk í raðir HK en í hennar stað hefur Valur fengið færeyska markvörðinn, Mariu Beder. Valur er að vinna í því að gera hana löglega fyrir leikinn á föstudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.