Ásrún Inga líklega ekki með Val fyrr en eftir áramót
Baldur Þorgilsson

Ásrún Inga Arnarsdóttir er í endurhæfingu eftir krossbandslit og mun að öllum líkindum ekki geta tekið þátt í æfingum með Valsliðinu fyrr en eftir áramót.

Ásrún Inga sleit krossband á undirbúningstímabilinu fyrir síðustu leiktíð og gekkst undir aðgerð í kjölfarið.

„Ásrún er að koma tilbaka eftir krossbandslit og vinnur í sínu prógrammi þangað til hún fær grænt ljós að taka þátt með okkur á æfingum sem verður líklegast ekki fyrr en eftir áramót,“ sagði Anton.

Ásrún Inga þarf því að bíða fram yfir áramót hið minnsta áður en hún getur farið að æfa með liðsfélögum sínum á ný.

Ásrún Inga er yngri systir landsliðsmannsins, Arnars Freys Arnarssonar en hún lék með 2006 landsliðinu á EM í Svartfjallalandi í sumar.

Olís-deild kvenna hefst á laugardaginn með opnunarleik Vals og Selfoss klukkan 15:00.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top