Hægri hornamaður Vals og íslenska landsliðsins, Þórey Anna Ásgeirsdóttir verður ekki með Val á næstunni en hún á von á barni í september. Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, segir félagið ætla að veita Þóreyju Önnu þann tíma og stuðning sem hún þarf á þessum tímamótum. Þórey Anna gengur með sitt annað barn. ,,Hún mun koma öflug tilbaka inn í þetta hjá okkur þegar að því kemur,“ sagði Anton. Þórey Anna hefur verið í algjöru lykilhlutverk hjá liði Vals undanfarin ár en hún framlengdi nýverið samningi sínum við félagið. Hún varð bikarmeistari með liðinu á síðustu leiktíð en hætti að leika með liðinu í kjölfarið. Valur fær Selfoss í heimsókn í 1.umferð Olís-deildarinnar á morgun klukkan 15:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.