Mariam og Hildur missa af byrjun tímabilsins
Baldur Þorgilsson

Mariam Eradze og Hildur Björnsdóttir verða ekki með Íslands-, deildar- og bikarmeisturum Vals þegar tímabilið hefst. Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, staðfesti þetta í samtali við Handkastið.

Hvorugar voru þær með í leik Vals gegn Haukum í Meistarakeppni HSÍ síðasta föstudag.

„Mariam er að vinna í sínu prógrammi að koma tilbaka en ekki hægt að setja neinn tímaramma varðandi það,“ sagði Anton.

Fyrirliði Vals á síðustu leiktíð, Hildur Björnsdóttir verður sömuleiðis frá í upphafi tímabilsins en óvíst er hversu lengi hún verður frá. Beðið er eftir nánari greiningu frá lækni áður en hægt verður að segja meira um stöðu hennar og mögulega endurkomu.

Hildur var að glíma við bakmeiðsli á síðustu leiktíð en töluverð mannekla er í leikmannahópi Vals þessa dagana en áður hefur Handkastið greint frá því að Hafdís Renötudóttir sé að koma til baka eftir meiðsli og Elísa Elíasdóttir. Þá er Þórey Anna Ásgeirsdóttir ólétt og Ásrún Inga Arnarsdóttir er enn að jafna sig eftir krossbandaslit.

Valur fær nýliða Selfoss í heimsókn í 1.umferð Olís-deildar kvenna næstkomandi laugardag klukkan 15:00 í opnunarleik tímabilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top