Til stóð að Egyptar kæmu hingað til lands í janúar á næsta ári í aðdraganda heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi síðar í þeim mánuði og myndu leika tvo vináttulandsleiki við Ísland í Laugardalshöllinni. Áttu leikirnir að vera lokaundirbúningur þjóðanna fyrir heimsmeistaramótið. Nú er hinsvegar ljóst að Egyptar hafa hætt við fyrirhugaða komu sína til Íslands en Handkastið greindi fyrst frá því í síðustu viku eftir að Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska landsliðsins staðfesti það í samtali við Handkastið. Ákvörðunin kemur íslenska Handknattleikssambandinu, HSÍ, í opna skjöldu og setur strik í reikninginn í undirbúningi íslenska liðsins fyrir HM. „Þetta kom okkur á óvart og er leiðinlegt. Við vorum búnir að semja við Egyptana um að fara fyrst til þeirra, sem við gerðum, og fá svo Egyptana heim til þess að geta verið lengur hér heima í aðdraganda HM,“ segir Jón Halldórsson, formaður HSÍ, í samtali við Stefán Árna Pálsson, íþróttafréttamann Sýnar. „Egyptar eru sterk þjóð, góðir í handbolta og vorum við því mjög spennt fyrir þessu verkefni. En þetta heiðursmannasamkomulag sem við vorum með okkar á milli, þeir sviku það.“ Nú liggur fyrir að Egyptar koma ekki til landsins en þeir hafa ákveðið að halda sitt eigið æfingamót í heimalandinu. Samkvæmt heimildum Handkastsins var Íslandi boðið að taka þátt í mótinu sem HSÍ afþakkaði. „Þetta er bara búið, við ætlum ekkert að hengja haus yfir þessu. Við erum búin að vera vinna að því núna í nokkrar vikur að finna landslið til þess að koma og spila við okkur hér í janúar. Það er enn markmiðið okkar. Að spila tvo heimaleiki hér fyrir framan þjóðina í janúar. Við róum öllum árum að því,“ segir Jón. Það getur reynst vandasamt að finna verðugan andstæðing með svo skömmum fyrirvara. Sterkustu handknattleiksþjóðir heims eru margar hverjar þegar búnar að ganga frá sínum undirbúningi fyrir HM. Jón segir engu að síður að markmiðið sé áfram að leika tvo heimaleiki í janúar. „Já, þetta var draumaundirbúningur. Við vorum búin að teikna þetta svoleiðis upp. En þetta eru bara aðstæðurnar sem við lendum í og eigum við ekki að segja að þær séu óstjórnanlegar. Þá þurfum við bara að bregðast við því. Við erum með öflugt teymi. Snorri Steinn og hans fólk í liðinu leitar að réttu lausninni fyrir liðið.“ „Snorri Steinn er núna að kanna þessa hluti. Það er ekkert fast í hendi en ég geri þó fastlega ráð fyrir því að það verði leikir hér heima í janúar. Þá aðallega til þess að lengja tímann sem strákarnir hafa hér heima saman í aðdraganda HM. Stórmót tekur langan tíma. Eins og á síðasta Evrópumóti vorum við 31 dag úti. Það væri þægilegt að geta stytt það um viku.“ Egyptar og Ísland mættust í tveimur æfingaleikjum í Kaíró í maí þar sem Ísland vann fyrri leikinn 31–30. Upphaflega stóð til að þjóðirnar mættust alls fjórum sinnum, tvisvar í Egyptalandi og tvisvar á Íslandi en nú er ljóst að það er úr sögunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.