Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari HK í Olís-deild kvenna Dagur Snær Steingrímsson hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Já ég er sáttur, undirbúningstímabilið hefur gengið vel heilt yfir. Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu? Áherslan hefur bara verið að gera okkur eins tilbúnar fyrir Olísdeildina og mögulegt er. Bæði höfum við sinnt líkamlega þættinum vel inná gólfi og í lyftingarsalnum ásamt því að nýta tímann í að fara yfir grunnatriðin okkar sóknar- og varnarlega. Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót? Staðan á hópnum er góð. Það er alltaf eitthvað smá hnjask á einum, tveimur leikmönnum en heilt yfir er staðan góð. Mannabreytingarnar hafa nú ekki verið mjög miklar hjá okkur en við fengum Millý frá Val sem hefur komið vel inn í hópinn hjá okkur svo helstu breytingarnar eru örugglega bara í teyminu með mér og Jovan Kukobat. Hilmar gerði frábært starf hérna áður en ég kom inn svo það er bara okkar að halda áfram að byggja ofan á þann grunn. Helsta áskorunin fyrir okkur verður að læra hratt inn á nýja deild og að bæta okkar leik með hverri umferðinni. Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins? Við stefnum hátt en vitum auðvitað að við erum nýliðar og þurfum að taka eitt skref í einu. Það er margt sem getur gerst á langri leiktíð svo við einbeitum okkur bara að því að ná í góðar frammistöður og sjáum hverju það skilar okkur. Ég er spenntur að sjá hvar við stöndum gagnvart hinum liðunum og hvaða skref við náum að taka á fyrsta árinu. Svo verður gaman að sjá nýtt deildar fyrirkomulag og hvernig breytt úrslitakeppni kemur út. Ég tæki Ídu Margréti úr Gróttu. Frábær leikmaður á báðum endum vallarins og svo nenni ég ekki að fá hárblásarann í fjölskylduboðunum ef ég svaraði þessu öðruvísi. Þjálfarar fái 'challenge' og geti sent dómarana í VAR ef það er einhver misskilningur í gangi hjá þeim eða fá vestið aftur á 7. manninn þegar spilað er með sjö í sókn. Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur? Valur.
Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar?
Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur?
Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu?
Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju?
Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.