Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari Stjörnunnar í Olís-deild kvenna Arnar Daði Arnarsson hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Já ég get ekki sagt annað. Við höfum verið að fá inn nýja leikmenn nánast vikulega allt undirbúningstímabilið alveg frá því í maí. Erlendu leikmennirnir voru að tínast inn um mánaðarmótin júlí/ágúst. Stelpurnar hafa æft vel, verið með góðan fókus á æfingum og við höfum reynt að átta okkur á því risa verkefni sem við erum í. Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu? Áherslurnar voru margar enda erum við að setja saman gjörsamlega nýtt lið í Garðabænum. Ef ég ætti að segja eitthvað eitt, þá höfum við lagt mikla áherslu á að átta okkur á því að það verður ekki allt frábært fyrstu vikurnar, því það væri frekar óeðlilegt og í raun hálf leiðinlegt, ef allt myndi ganga smurt fyrir sig í fyrsta sinn sem við æfum hlutina. Við höfum einnig lagt áherslu að vera ekki að fara fram úr okkur og reynt að byggja upp ákveðinn grunn bæði varnar og sóknarlega með það í huga að geta byggt ofan á það, í framhaldinu. Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót? Staðan er allt í lagi. Það er ljóst að Sara Katrín Gunnarsdóttir og Natasja Hammer eru kasóléttar og verða ekki með okkur fyrstu mánuði tímabilsins og í raun væri það algjör bónus ef við fáum þær inn í vetur. En ef við setjum fókusinn á þá leikmenn sem eru ekki að ganga með barn, þá er staðan ágæt. Ef ég hefði verið spurður fyrir viku síðan, þá get ég alveg viðurkennt að svarið hefði verið jákvæðara en við vonum að meiðsli leikmanna í dag hafi ekki áhrif þegar tímabilið hefst. Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar? Tíu leikmenn komnir, átta leikmenn farnir og tvær óléttar. Þú getur rétt ímyndað þér. Það er ekki annað hægt að segja en búið sé að hrista aðeins upp í hlutunum og vonandi að nú sé verið að byggja upp lið af leikmönnum sem hafa trú á því verkefni sem við gætum verið að leggja af stað í. En til að svara spurningunni, þá er ég mjög ánægður með þær breytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar. Það var einn leikmaður sem var að renna út af samningi í sumar sem framlengdi við liðið, það er ákveðið högg fyrir egó-ið en ég óska þeim leikmönnum sem sáu ljósið annarsstaðar góðs gengis í sínum verkefnum. Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur? Við erum með nýjan leikmannahóp í höndunum og það verða fjölmörg verkefni sem við fáum upp í hendurnar í vetur. Það verður alvöru áskorun fyrir okkur að glíma við öll þau verkefni, saman sem nýtt lið og læra á hvor aðra, kynnast og sjá hvort við náum að læra og þroskast í þeim verkefnum sem bíða okkar sem lið. Fyrir utan þá áskorun að margar af stelpunum í hópnum hafa aldrei leikið í Olís-deildinni, eða þá í litlu hlutverkum. En ég hef eiginlega minnstar áhyggjur af þeirri áskorun. Ég ætla bara vona að stelpurnar njóti tímabilsins og elski að vera í baráttunni. Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins? Mínar væntingar eru þær að við bætum okkar leik með hverri viku sem líður. Alls ekkert klisjukennt svar. Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu? Fyrir utan það að vera spenntur fyrir öllum þeim verkefnum sem bíða okkar í Garðabænum þá er ég svolítið spenntur fyrir því að sjá hvernig tíu liða Olís-deild eigi eftir að spilast. Tvískiptingin eftir tvær umferðir og nýtt fyrirkomulag í úrslitakeppninni. Ég hef mikla trú á að þetta verði þræl skemmtileg deild fyrir fleiri lið heldur en hefur verið undanfarin ár. Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju? Ég hef alltaf haft mikla trú á Söndru Erlingsdóttur sem leikmanni. Hún er ágæt í flestu sem hún gerir bæði innan og utan vallar. Erlingur, faðir hennar, Richardsson myndi síðan fá árskort hjá Stjörnunni og væri heiðursgestur á fyrsta deildarleik. Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin? Hætta að dæma ólöglega miðju. Það væri bara nóg að hlaupa í gegnum miðjuna með boltann með sér á einhverjum tímapunkti. Svolítið mikil einföldun, en ég er aðallega að meina að það á ekki að skipta máli hvort sá sem er að taka miðjuna sé með eina, tvær eða hvorugar lappir inn í einhverjum ákveðnum hring þegar miðjan er tekin. Bara flaut og áfram gakk og hröðum leiknum ennþá meira. Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur? Miðað við þær styrkingar sem hafa átt sér stað í Hafnarfirðinum, þá þætti mér það þjálfræðilegt afrek ef Haukar verða ekki deildarmeistarar í ár. En það fer auðvitað eftir því hvort Haukar neyðast til að fara til Vestmannaeyja í miðju Evrópuverkefni einhverntímann í vetur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.