Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari ÍBV í Olís-deild kvenna Magnús Stefánsson hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Við hefðum viljað fá meiri mótspyrnu í leikjunum sem við höfum spilað hingað til. Leikirnir hafa vissulega unnist, en það er kannski ekki aðal markmiðið með æfingaleikjum. Við Hilmar þurfum að vera meira á tánum þegar kemur næstu æfingaleikja törn. Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu? Við viljum spila okkur saman bæði varnarlega og sóknarlega. Svo gengur það verr en við gerðum ráð fyrir, aðallega vegna þess að bæði Ásdís og Agnes koma meiddar út úr sínum landsliðsverkefnum en þær eru á sama tíma stór púsl í okkar liði. Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót? Við erum að verða nokkuð ferskar. Fullt af hlutum sem við viljum bæta og viljum gera betur, það er langhlaupið. En það gæti orðið smá bið eftir Ásdísi og Agnesi. Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar? Við missum út Britney og fáum inn Andreu. Það er mikill missir í Britney, hún er karakter sem hristir upp í hlutunum og lífgar upp á æfingarnar o.s.frv. Eins vorum við búnir að koma henni í nýtt hlutverk og nýja stöðu sem hún var farin að blómstra í undir lok síðasta tímabils. Þess vegna er mjög leitt að sjá á eftir henni. Varðandi Andreu að þá erum við að fá mikil gæði inn í liðið okkar með henni. Hún styrkir um leið mjög við þann æfingakúltúr sem við erum búnir að vera að vinna með og þann aga sem við viljum sjá hjá okkar liði. Þetta er tveir öflugir leikmenn sem öll lið myndu vilja hafa í sínu liði. Við verðum auðvitað án Amalie Fröland, það er stór biti að missa. Ólöf hefur verið að stíga upp og það verður spennandi fylgjast með hennar þróun. Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur? Við þurfum að fá alla leikmenn liðsins til þess að bera virðingu fyrir verkefninu og vera tilbúnar í að draga vagninn. Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins? Við ætlum að sjálfsögðu að reyna að stríða Haukum eitthvað, þær eru með gríðarlega jafna og góða breidd. Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu? Það verður gaman að fylgjast með ungu leikmönnunum í deildinni í vetur, þeim fer fjölgandi og gæði þeirra verða sífellt betri. Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju? Andrea Gunnlaugs, markmaður. Af því að hún er okkar kona og svo þurfum við aukna breidd í rammavörslunni. Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin? Hættum að taka miðju, það þjónar engum tilgangi. Við viljum að frumkast verði tekið frá markmanni. Eftir að markmaður losar sig við boltann er leikurinn í gangi. Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur? Haukar, eru með gríðarlega mikla og skemmtilega breidd.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.