Handboltinn í Evrópu er byrjaður að rúlla aftur eftir sumarfrí og fyrstu umferðirnar í Portúgal og Sviss fóru af stað í dag. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk þegar Sporting vann stórsigur á Avanca, 46-23 í portúgölsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Sporting hafði sterk tök á leiknum frá upphafi og leiddi 20-8 í hálfleik. Munurinn jókst enn frekar eftir hlé og að lokum skildi 23 mörk liðin að. Orri Freyr átti góðan leik fyrir Sporting og var næstmarkahæsti leikmaður liðsins með sex mörk. Kiko Costa var markahæstur með átta mörk. Tvö lið með íslenska leikmenn innanborðs hófu keppni í svissnesku QHL-deildinni í handbolta í kvöld. GC Amicitia Zurich hafði betur gegn Handball Stafa 39-33 á heimavelli. Birgir Már Birgisson leikur með Zurich en hann gekk til liðs við félagið í maí frá FH. Í hinum leiknum vann Kadetten Schaffausen öruggan sigur á HSC Suhr Aarau, 28-20 á útivelli. Í liði Kadetten leikur landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson sem skoraði sex mörk úr sex skotum í leiknum í kvöld. Úrslitasíða Svissneska boltans liggur niðri svo ekki er ljóst hve mörg mörk Óðinn skoraði en hann var valinn maður leiksins í leikslok.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.