Arnór Atlason og lærisveinar hans í TTH Holstebro byrjuðu tímabilið í dönsku úrvalsdeildinni með góðum sigri á Bjerringbro-Silkeborg, 37-33, í Gråkjær Arena í Holstebro í gærkvöld. Heimamenn voru með eins marks forskot í hálfleik, 15-14, en náðu að auka forskotið í síðari hálfleik og tryggja sér að lokum fjögurra marka sigur. Alls mættu 1.872 áhorfendur á fyrsta heimaleik TTH Holstebro á tímabilinu. Jóhannes Berg Andrason hafði fremur hægt um sig í sókninni og komst ekki á blað sem markaskorari. Hann lagði hins vegar upp eitt mark fyrir samherja sína. Arnór Atlason stýrir liði Holstebro. Benedikt Gunnar Óskarsson var ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni. Benedikt er enn að jafna sig eftir alvarlegt slys sem hann varð fyrir á golfvellinum í sumar þegar hann fékk golfkúlu í höfuðið. Hann missti þá hreyfigetu í hægri hönd og hefur verið í endurhæfingu síðan. Þrír leikmenn Holstebro voru markahæstir hjá liðinu með sex mörk hver; Emil Grønbech, Jonas Raundahl og Magnus Storgaard Pedersen. William Aar og Emil Reinholdt Hansen skoruðu fimm mörk hvor, en Joachim Lyng Als og Eskil Reitan gerðu fjögur. Hjá Bjerringbro-Silkeborg voru Lasse Sunde Lid og Buster Juul markahæstir með átta mörk hvor. Hjalte Schmøkel Sinding skoraði sex og Patrick Boldsen fjögur.Úrslit í 1. umferð

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.