Kvennalið Selfoss er komið í Olís-deild kvenna, en liðið fékk óvænt sæti í deildinni níu dagar fyrir fyrsta leik liðsins í efstu deild. Selfyssingar fengu sætið eftir að Víkingur dró lið sitt úr keppni með skömmum fyrirvara og ákvörðunin hefur komið Perlu Ruth Albertsdóttur, fyrirliða Selfoss, í opna skjöldu. Perla, sem snýr aftur á handboltavöllinn í vetur eftir árs fjarveru vegna barneigna, ræddi stöðuna við Jóhann Inga Hafþórsson, blaðamann Morgunblaðsins, fyrir helgi. Viðtalið birtist á mbl.is. „Ég er búin að búast við þessu frá því síðasta tímabil lauk. Þetta kom mér ekki á óvart en það kom mér á óvart hvað þetta kom seint,“ sagði Perla. Selfoss fagnar að sjálfsögðu því að fá tækifæri til að leika í efstu deild en tímasetningin setur félagið í erfiða stöðu. Liðið hefur haft allt annað undirbúningsferli en efstu deildarlið og hefur nú aðeins rúma viku til að búa sig undir fyrsta leik. Perla segir að ákvörðunin hafi meðal annars komið í veg fyrir að Selfoss gæti styrkt hópinn með eðlilegum hætti. „Að frétta þetta núna en ekki fyrir 3-4 mánuðum tók af okkur möguleikann á að styrkja liðið. Útlendingarnir okkar frá því á síðustu leiktíð vildu t.d. vera áfram ef við hefðum verið uppi. Við misstum af mikilvægum tíma til að styrkja liðið og undirbúa okkur fyrir efstu deild. Núna fáum við bara níu daga og ég er orðlaus yfir þessu,“ sagði hún við mbl.is. Systurnar, Mia Kristin Syverud og Marte Syverud yfirgáfu liðið í sumar og fóru aftur heim til Noregs. Það er hinsvegar enn möguleiki á að Marte Syverud gæti komið aftur til Selfoss því lið hennar sem hún samdi við fyrr í sumar í norsku B-deildinni hætti þátttöku fyrir stuttu. Perla kveðst eiga erfitt með að skilja hvers vegna ákvörðun Víkings um að hætta við þátttöku í Olís-deildinni hafi ekki komið fyrr. „Víkingur sendi frá sér yfirlýsingu um að liðið væri ungt og að það væri mikilvægt verkefni fram undan sem ætti frekar heima í Grillinu. Það eru ekki beint nýjar upplýsingar og staðan er ekkert öðruvísi en í júní. Ég skil ekki að þessi ákvörðun sé tekin núna,“ sagði Perla. Selfoss var því í þeirri stöðu að undirbúa sig fyrir Grill66-deildina en fær nú skyndilega sæti meðal þeirra bestu. Tíminn til að bregðast við er hins vegar afar knappur. Perla var sjálf ekki með Selfossi á síðasta tímabili og segir að hún sé í raun eina nýja styrking liðsins fyrir komandi tímabil. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur hún þó mikla trú á hópnum sem Selfoss hefur yfir að ráða. „Við sýndum á Ragnarsmótinu að við erum með flottan hóp. Við vorum í jöfnum leik við ÍBV og unnum Víking og KA/Þór stórt. Við erum á góðum stað, með lítinn og góðan hóp. Ég hef fulla trú á að við náum að koma okkur fljótt í gang,“ sagði Perla. Fyrsti leikur liðsins verður í þokkabót opnunarleikur Olís-deildinnar þegar liðið heimsækir Íslands, deildar- og bikarmeistara Vals klukkan 15:00 næstkomandi laugardag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.