Þrátt fyrir að Olís-deildir karla og kvenna fari ekki af stað fyrr en í næstu viku er boltinn heldur betur farinn að rúlla í Evrópu og var okkar fólk í Evrópu í eldlínunni í dag eins og svo oft áður. Í Portúgal unnu Íslendingaliðin öll, Sporting, Porto og Benfica sannfærandi sigra og í Sviss voru Óðinn Þór Ríkharðsson og Birgir Már Birgisson í eldlínunni hjá sínum liðum. Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í Porto unnu 22ja marka útisigur gegn Avanca í dag 42-20 eftir að hafa verið 22-8 yfir í hálfleik. Miklir yfirburður leikmanna Porto sem komust í 7-1. Liðið slakaði aldrei á og náði mest 23ja marka forystu í leiknum í stöðunni 42-19 en Avanca skoraði lokamark leiksins. Þorsteinn Leó skoraði eitt mark fyrir Porto í leiknum en hann varð faðir á dögunum. Breki Hrafn Árnason og liðsfélagar hans í Benfica unnu síðan ellefu marka sigur á Aguas Santas 34-23 á heimavelli en Benfica sem hefur gengið í gegnum miklar mannabreytingar í sumar voru 16-8 yfir í hálfleik. Líkt og Porto þá komst Benfica í 7-1 í upphafi leiks og 14-4. Þá unnu Orri Freyr Þorkelsson og félagar sannfærandi sigur á Santo Tirso 37-25 eftir að hafa verið 17-10 yfir í hálfleik. Orri var markahæstur í liði Sporting með sjö mörk en hann hefur hafið tímabilið með stæl í tveimur sigrum í fyrstu tveimur leikjum liðsins á tímabilinu. Óðinn Þór Ríkharðsson var öflugur í sjö marka sigri Kadetten gegn Wacker Thun, 42-35 á heimavelli í Sviss í dag. Óðinn Þór skoraði fimm mörk þar af eitt úr vítakasti í leiknum. Þá var Birgir Már Birgisson næst markahæstur í sigri Zurich gegn Basel, 29-35 á útivelli. Birgir Már skoraði sjö mörk úr ellefu skotum. Sven Ehrig var markahæstur í liði Zurich með níu mörk en bæði Kadetten og Zurich hafa byrjað tímabilið á tveimur sigur leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.