Frisch Auf Göppingen hóf nýtt tímabil í þýsku Bundesligunni með sigri þegar liðið lagði HC Erlangen, 32–30 á heimavelli í kvöld. Göppingen hafði fjögurra marka forskot í hálfleik 17–13 og hélt Erlangen í hæfilegri fjarlægð lengst af seinni hálfleiks. Marcel Schiller og Elias Newel voru markahæstir í liði Göppingen með sjö mörk hvor. Göppingen náði góðum tökum á leiknum og tryggði sér að lokum tvö stig í fyrsta deildarleik tímabilsins. Ýmir Örn Gíslason var í liði Göppingen en komst ekki á blað sem markaskorari. Íslendingarnir hjá Erlangen, Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson, voru hins vegar ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni en báðir hafa þeir verið að glíma við meiðsli á undirbúningstímabilinu. Þetta var eini leikurinn í þýsku Bundesligunni í dag en 1.umferðin lýkur á morgun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.