Haukur skoraði sjö í dramatík – Magdeburg vann Íslendingaslaginn
Sven Simon /AFP

Fjórir leikir fóru fram í 1. umferð þýsku Bundesligunnar í dag og íslenskir leikmenn komu við sögu í þremur þeirra.

SC Magdeburg hóf titilvörnina með sigri þegar liðið lagði VfL Gummersbach 33–31 á útivelli. Magdeburg byrjaði af miklum krafti og komst í 5–1 en Gummersbach vann sig inn í leikinn og jafnaði í 13–13. Magdeburg svaraði með góðum kafla fyrir hálfleik og leiddi 18–14 í leikhléi.

Gummersbach gafst þó ekki upp og var aðeins tveimur mörkum á eftir Magdeburg í stöðunni 28–30 undir lokin. Magdeburg hélt haus og tryggði sér að lokum stigin tvö.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sjö mörk fyrir Magdeburg og Ómar Ingi Magnússon skoraði þrjú sem og Elvar Örn Jónsson. Matthias Musche var markahæstur í liði Magdeburg með níu mörk. Hjá Gummersbach var Elliði Snær Viðarsson á sínum stað og skoraði sjö mörk úr átta skotum. Teitur Örn Einarsson var hins vegar frá vegna meiðsla sem og Spánverjinn, Alex Dujshebaev. Miro Schluroff var markahæstur Gummersbach með níu mörk.

Í Hannover varð svo mikil dramatík þegar heimamenn í TSV Hannover-Burgdorf unnu Rhein-Neckar Löwen 32–31 eftir að hafa verið undir 14–13 í hálfleik. Löwen náði góðri forystu í seinni hálfleik, meðal annars 21–16, en Hannover gafst ekki upp og sneri leiknum sér í hag á lokamínútunum. August Pedersen skoraði sigurmarkið úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn en hann var markahæsti leikmaður leiksins með tíu mörk.

Haukur Þrastarson skoraði sjö mörk fyrir Rhein Neckar Löwen. Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Hannover-Burgdorf að þessu sinni.

Í Wetzlar urðu svo óvænt úrslit þegar nýliðar SG BBM Bietigheim-Metterzimmern unnu HSG Wetzlar 35–33 á útivelli. Staðan var jöfn, 18–18, í hálfleik, en Bietigheim hafði betur á lokakaflanum og tryggði sér sigur í fyrsta leik sínum eftir uppreisn í efstu deild.

Þar með fékk Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Wetzlar, slæma byrjun á tímabilinu. Lið hans var með jafna stöðu í hálfleik en tókst ekki að tryggja sér stigin tvö gegn nýliðunum í 1.umferð.

Í fjórða og síðasta leik dagsins fóru hinir nýliðarnir í Balingen með sigur af hólmi á heimavelli gegn Einari Þorsteini Ólafssyni og félögum í Hamburg 30-26. Staðan var jöfn í hálfleik 17-17 en Einar Þorsteinn komst ekki á blað hjá Hamburg í leiknum.

Úrslit dagsins:
Hannover-Burgdorf - Rhein Neckar Lowen 32-31
Wetzlar - Bietigheim 33-35
Gummersbach - Magdeburg 31-33
Balingen - Hamburg 30-26

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top