Versta sviðsmyndin sem gat teiknast upp
Sævar Jónasson

Eyþór Lárusson, þjálfari kvennaliðs Selfoss, segir það hafa verið sjálfsagt fyrir félagið að taka sæti í Olís-deild kvenna þegar það bauðst, þrátt fyrir að ákvörðunin hafi komið aðeins níu dögum fyrir upphaf deildarkeppninnar.

Selfoss tók sæti Víkings í deildinni eftir að Víkingur óskaði eftir því að gera sætaskipti og leika þess í stað í Grill66-deildinni á komandi tímabili. Selfoss féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð eftir að hafa endað neðst í 8 liða Olís-deild kvenna.

„Nei, í raun ekki. Við viljum vera í Olís,“ segir Eyþór þegar hann er spurður hvort annað hafi komið til greina. Hann segir þó tímasetninguna afar erfiða fyrir Selfoss.

„Að mínu mati er þetta þó versta sviðsmyndin fyrir okkur sem gat teiknast upp eftir ársþingið. Við ræddum þetta í maí en þá var þessi orðrómur mjög hávær, það er að Víkingur ætlaði ekki að þiggja sætið eftir ákvörðun um fjölgun.“

„Það er auðvitað hægt að setja mörg spurningamerki við það hvernig þetta fær að gerast níu dögum fyrir mót. Að undirbúa tímabil í Grillinu er ekki það sama og Olís, það segir sig sjálft.“

Þrátt fyrir stuttan fyrirvara segir Eyþór að einhugur hafi verið innan Selfoss um að taka slaginn í efstu deild. „Þrátt fyrir það var einhugur um ákvörðunina og er liðið spennt að takast á við veturinn.“

Sterkir leikmenn að koma til baka

Selfoss er þó ekki að hefja tímabilið frá grunni. Sterkir leikmenn eru á leið aftur eftir meiðsli og barneignir, þó á móti hafi félagið misst leikmenn sem léku stór hlutverk á síðasta tímabili þar á meðal systurnar, Miu Kristinu Syverud og Marte Syverud sem léku með liðinu á síðustu leiktíð og voru atkvæðamiklar fyrir liðið.

„Við erum á ágætum stað, það eru sterkir póstar að koma til baka eftir meiðsli og barneignir en á sama tíma misstum við frá okkur leikmenn sem léku stór hlutverk í fyrra. Við teljum okkur um margt sterkari en í fyrra og vonandi reynist það rétt. Blandan í hópnum er góð, eldri leikmenn með reynslu og svo ungir leikmenn sem leggja mikið á sig.“

Hann segir þó ljóst að breiddin í hópnum sé ekki nægilega mikil miðað við verkefnið sem bíður.

„Það er þó þannig í dag að hópurinn mætti vera breiðari og þá sérstaklega í ljósi þess að við erum á leið í tímabil í Olís.“

Skoða mögulegar styrkingar

Breytt staða Selfoss gæti því orðið til þess að félagið leiti eftir frekari styrkingum áður en félagaskiptaglugginn lokar.

„Við erum að meta það þessa dagana. Eins og allir vita er markaðurinn ekki djúpur á þessum tímapunkti. Það þarf því að koma í ljós hvort það takist," sagði Eyþór að lokum en þess ber að geta að framkvæmdastjóri Selfoss, Halldór Stefán Haraldsson er umboðsmaður og því eru hæg heimatökin fyrir Selfyssinga.

Selfoss leikur opnunarleik Olís-deildarinnar næstkomandi laugardag þegar liðið heimsækir Íslands, deildar og bikarmeistara Vals klukkan 15:00 á Hlíðarenda.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top