Bjarki Már fór haus í haus við markvörðinn og fleygt í stöngina
Instagram

Bjarki Már Elísson fékk draumabyrjun á ferlinum hjá franska stórliðinu PSG um helgina þegar liðið varð meistari meistaranna í Frakklandi með naumum 21-20 sigri á Montpellier.

Bjarki Már, sem gekk í raðir PSG frá Veszprém í sumar, var markahæstur Parísarliðsins í leiknum með fjögur mörk í sínum fyrsta keppnisleik fyrir félagið. PSG var fjórum mörkum undir í hálfleik, 8-12, en sneri leiknum sér í hag eftir hlé og tryggði sér titilinn.

Það er þó ekki aðeins frammistaða Bjarka sem hefur vakið athygli eftir leikinn. Myndskeið af óvenjulegu atviki í leiknum hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlinum X. Atvikið má sjá hér neðst í fréttinni.

Snemma í síðari hálfleik skoraði Bjarki eftir hraðaupphlaup en lenti þá í samstuði við Rémi Desbonnet, markvörð Montpellier. Þeir fóru þá saman í jörðina áður en samherji Desbonnets kom aðvífandi og ýtti Bjarka með þeim afleiðingum að Íslendingurinn hafnaði harkalega í stönginni og síðan í gólfinu.

Bjarki lét atvikið ekki stöðva sig og hélt áfram leik. Hann skoraði fjögur mörk í eins marks sigri PSG og fagnaði þar með sínum fyrsta titli með franska stórliðinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top