Færeyingur til Vals
Valur

Íslands, deildar og bikarmeistarar Vals hafa loks kynnt til félagsins markvörðinn, Maria Beder sem gengur í raðir félagsins frá H71. Maria Beder kom til landsins í byrjun ágúst mánaðar og hefur leikið með liðinu á undirbúningstímabilinu.

,,Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að María Beder hefur gengið til liðs við Val," segir í tilkynningunni frá Val. Maria Beder verður í samkeppni við Hafdísi Renötudóttir hjá Valsliðinu í vetur og þá er ekki ósennilegt að hún spili einnig með Val 2 í Grill66-deildinni en Maria er fædd árið 2006 og hefur verið í 2006 landsliði Færeyja. Hún lék meðal annars á HM U20 í Kína í sumar.

,,Ég er virkilega ánægður að María Beder sé komin til okkar í Val. Hún er efnilegur markmaður sem stóð sig vel á síðasta tímabili í færeyjum og einnig með 2006 landsliði færeyja. Hún mun mynda sterkt markvarðapar með Hafdísi í vetur og verður gaman að fylgjast með þróuninni hjá henni í vetur,” sagði Anton Rúnarsson, þjálfari liðsins.

Maria Beder er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals í sumar en áður höfðu þær Britney Cots og Katla María Magnúsdóttir gengið í raðir Vals í sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top