Kvennaliði Stjörnunnar hefur borist liðsauki fyrir átökin í vetur í Olís deild kvenna. Hin ungverska Fruzsina Nagy og Akureyringurinn Sunna Katrín Hreinsdóttir eru gengnar til liðs við félagið. Arnar Daði Arnarsson þjálfari Stjörnunnar staðfesti það í samtali við þann sem þetta ritar. Fruzsina Nagy er 20 ára ungverskur línumaður sem kemur til landsins í gegnum Janus Daða Smárason og unnustu hans Emblu Jónsdóttur. "Fruzsina er hávaxin línumaður sem hefur komið vel inn í þetta hjá okkur en hún er reyndar að glíma við meiðsli og óvíst hvenær hún kemur til baka. Hún hjálpar okkur bæði varnar og sóknarlega” lét Arnar Daði Arnarsson hafa eftir sér um ungverska línumanninn. "Sunna Katrín Hreinsdóttir er öflugur varnarmaður sem flestir sem hafa fylgst með Grill66-deildinni undanfarin ár hafa séð og tekið eftir. Nú fær hún tækifæri til að láta til sín taka í Olís-deildinni og það verður gaman að hjálpa henni í því verkefni. Það var ánægjulegt að fá Sunnu til okkar. Hún er reyndar ekki byrjuð að æfa með okkur vegna vinnu og búsetu en vonandi að hún geti byrjað að æfa með okkur á næstu dögum" bætti Arnar Daði við um norðlenska hornamanninn Sunnu Katrínu Hreinsdóttur. Fyrsti leikur Stjörnunnar verður næstkomandi laugardag, 5. september kl. 16:00 í Skógarselinu á móti ÍR. Stjarnan: Farnar:
Komnar:
Trude Blestrud Håkonsen frá KA/Þór
Sara Winde frá Skövde (Svíþjóð)
Valgerður Elín Snorradóttir frá Víking
Erla Sif Leósdóttir frá Val
Sigrún Erla Þórarinsdóttir frá Val
Elín Vilhjálmsdóttir frá Haukum
Embla Heiðarsdóttir frá Val
Dora Pajic frá Osijek (Króatíu)
Fruzsina Nagy frá Érdi Sport (Ungverjalandi)
Sunna Katrín Hreinsdóttir frá Víkingi
Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir í Hauka
Guðmunda Auður Guðjónsdóttir í Hauka
Eva Björk Davíðsdóttir í Gróttu
Hanna Guðrún Hauksdóttir í Fram
Rakel Dóróthea Ágústsdóttir í Aftureldingu
Rakel Guðjónsdóttir
Þóra Hrafnkelsdóttir í Hauka (var á láni)
Aníta Björk Valgeirsdóttir - í nám erlendis

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.