Donni markahæstur í dönsku úrvalsdeildinni 
Kristinn Steinn Traustason

Kristján Örn Kristjánsson, Donni hefur farið frábærlega af stað með Skanderborg AGF og er markahæstur í dönsku Herreligaen eftir tvær fyrstu umferðir.

Kristján Örn Kristjánsson, eða Donni eins og hann er oftast kallaður, hefur heldur betur látið til sín taka í upphafi tímabils í dönsku úrvalsdeildinni. Donni gekk til liðs við Skanderborg AGF árið 2024 eftir fjögur tímabil í frönsku úrvalsdeildinni með Pays d'Aix, PAUC. Hann hafði þar áður leikið með ÍBV og Fjölni þar sem hann er uppalinn.

Donni hefur skorað 19 mörk í fyrstu tveimur leikjum Skanderborg AGF. Hann hefur aðeins þurft 30 skot til að skora mörkin 19, sem gerir 63,3 prósent skotnýtingu. Öll mörkin hafa komið úr opnum leik þar sem hann hefur ekki tekið eitt einasta vítakast.

Næstur á listanum er Viktor Bergholt með 18 mörk en þrír leikmenn koma þar á eftir með 17 mörk.

Skanderborg hefur hafið tímabilið á einum sigri gegn TMS Ringsted og tapi gegn GOG.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top