Mikill munur á æfingagjöldum í handbolta eftir félögum
HSÍ / Mummi Lú

Töluverður munur er á æfingagjöldum barna í handbolta eftir íþróttafélögum hér á landi. ASÍ vekur athygli á þessum mun í nýrri samantekt á kostnaði við íþróttaiðkun barna. Munurinn getur numið allt að 77 þúsund krónum fyrir sama aldurshóp eftir því hjá hvaða félagi barn æfir.

Samkvæmt samantektinni geta æfingagjöld í handbolta numið allt að 175 þúsund krónum á ári, sem getur reynst fjölskyldum þungur kostnaðarliður þrátt fyrir frístundastyrki sveitarfélaga. Mestur munur virðist vera á gjöldum eftir félögum.

Hjá Þór á Akureyri kostar árið 69 þúsund krónur fyrir börn á aldrinum 6–7 ára. Hjá Fram er gjaldið hins vegar 112.500 krónur fyrir sama aldurshóp. Munurinn er því 43.500 krónur. Það er því 63% dýrara fyrir 6-7 ára iðkenda að æfa handbolta hjá Fram heldur en Þór.

Þegar horft er á 10–11 ára börn eykst munurinn enn frekar. Þar kostar árið 85 þúsund krónur hjá Þór, en 161.650 krónur hjá Fram. Munurinn er því 76.650 krónur. Hér erum við að tala um rúmlega 90% mun á milli félagana.

Fyrir 14–15 ára börn kostar árið 105 þúsund krónur hjá Þór. Hjá HK er gjaldið 175 þúsund krónur og hjá Fjölni 176.060 krónur sem er 76% dýrara en hjá Þór.

Það munar því meira en 71 þúsund krónum á lægsta og hæsta æfingagjaldi í þessum aldurshópi.

Kostnaðurinn getur orðið mikill

Æfingagjöld eru aðeins einn hluti þess kostnaðar sem fylgir því að stunda handbolta. Þar bætast meðal annars við kostnaður vegna keppnisferða, búninga og annars sem fylgir íþróttaiðkun auk þess sem HSÍ hefur sett á laggirnar iðkendagjald sem HSÍ rukkar hvern iðkenda sjálft.

Þessi samanburður ASÍ sýnir því hversu ólíkur kostnaðurinn getur verið fyrir foreldra eftir því hvar á landinu barnið æfir og hjá hvaða félagi. Á sama tíma er ljóst að frístundastyrkir sveitarfélaga duga misvel þegar ársgjöldin eru komin yfir 100 eða jafnvel 150 þúsund krónur.

Fyrir íslenskan handbolta er þetta áhugavert umhugsunarefni, enda skiptir kostnaður miklu máli þegar kemur að því að tryggja að börn og unglingar hafi raunverulegt tækifæri til að stunda íþróttina til lengri tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top